18.01.2006 14:30:35 / fridaoghlin

Hættar....

...að blogga!!

Hafið það gott kiðlingarnir okkar:)

Kys og kram

Fríða og Hlín


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 19:36:28 / frida

Bláa Lónið og leti líf;)

Vá hvað það er geðveikt að vera búin í prófum, og að vera að gera ekki neitt...sweeeet!

Vá hvað ég er búin að hafa það gott eftir prófin. Alltof mikið djamm en æi ég átti það líka bara skilið finnst mér! En það er ekki oft sem maður er frekar blautur á mánudegi og þriðjudegi en það gefur bara lífinu lit, er það ekki???

Ég og Kristin skelltum okkur í Bláa Lónið í dag, vá hvað við höfðum það gott! Og ótrúlegt en satt þá lentum við á séns;) Hahahha, bara fyndið! Þetta voru mkjög ríkir Ítalar, eða að þeirra sögn. Buðu okkur í Perluna út að borða og alles....;) Þannig að við erum að fara þangað í kvöld, ég er bara mjög spennt sko! Var einmitt að koma úr lagningu fyrir kvöldið.

En í allt annað...Ég átti ekkert smá góðan dag í gær! Vil byrja á að þakka HR fólkinu mínu fyrir frábæra ferð, þetta var algjört æði! Kom heim í gær upp úr hádeginu, þreyttari en allt þreytt.....Svaf í 2 tíma, great;) En já hafði það svo rosa gott heima í faðmi fjölskyldunnar, og svo fórum við út að borða í Perlunu um kvöldið....vá bara gott! Ég borðaði á mig gat, já og svo fékkk ég svona stjörnuljós og það var klappað fyrir mér...rosa stemmning! Mér leið eins og ég væri ennþá 12, það er reyndar ekkert að því!!!
Annars fékk ég fullt af pökkum og taumlaus gleði!!!!

Hlín mín er að fara í síðast prófið á morgun...þú massar þetta!!!

Bara 5 dagar í Köben...get ekki beðið!

Já og btw þá sögðum við blá kalt NEI þarna við Perlunni, hehe

Kiss og knúsar

Fríða


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 09:58:44 / hlin

Hún á afmæli í dag...

Elsku sætasta Fríða mín.

Til hamingju með 21. árs afmælið :haha:

Fra.jpg

Risa knús og einn á kinnina :*

Hlín


» 115 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 21:49:18 / frida

2 dagar og 9 dagar!!!

Loksins er þessi prófatörn að verða búin! Hún er nú samt ekki búin að vera neitt leiðinleg...bara þreytandi að vera sí lærandi. Ég og Kristín erum búnar að hafa það mjög gott með frímerkjasöfnurunum og erum við öll orðin hinir mestu félagar;) Ég held bara að ég eigi eftir að sakna þess að hanga þarna alla daga og læra....æi kannski ekki!!

Kíkti aðeins út í gær..það var fínt. Ágætt að komast aðeins út, fá sér einn bjór og klæða sig úr prófljótunni...þó hún fari nú ekki alveg fyrr en á mánudaginn!!

Kristjana er búin að panta sér far með okkur út...ég er ekkert smá ánægð með þig! Það verður æðislegt hjá okkur. Huggum okkur alla daga og verslum þess á milli..gerist ekki mikið betra í góðra vina hóp;)

Annars eru prófin bara búin að ganga allt í lagi bara..eða það held ég eða vona frekar...krossa fingur!!!

Jæja ætla að fara að lesa "What makes a leader?" og reyna að tileinka mér e-h af innihaldi greinarinnar.

Ég er orðin húkkt á að hlusta á Tracy Chapman....æi ég fæ einhverja svona góða tilfinningu þegar ég hlusta hana...æi veit ekki hvað það er, en...!!!!!

Held að þetta sé bara orðið gott í bili...og já BARA 9 dagar í Köben:)

-Fríða-


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 14:54:56 / frida

.........................

Kommentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 20:01:04 / frida

15 dagar...

Jæja helgin bara búin..fúlt en samt ekki. Get ekki beðið eftir að næsta helgi er búin! Þessi lærdómur er hálfnaður og úff hvað ég verð fegin þegar þetta verður búið því þá tekur bara taumlaus gleði við!!

HR- djamm á mánudaginn, sumarbústaður með bekknum á þriðjudaginn, afmæli á miðvikudaginn...þið sem voruð búin að gleyma mér þá hafi þið enn tíma til að kaupa gjöf....SPAUG!! Jafnvel að maður skelli sér á Hjálma, Trabant og Mugison á fimmtudaginn og já og svo annað afmæli á föstudaginn.....bara gaman framundan!! Er það reyndar alltaf en úber gaman þessa vikuna. OG vá ekki má gleyma KÖBEN...ÉG GET EKKI BEÐIÐ!!!!

Skellti mér í bíó í gær á Saw II...hún er ógeð!! Og ekki fyrir viðkvæma..hefði verið gott að vita það áður....hehehe! Smá skot, taki þeir sem taka vilja:haha: En hún var samt hin besta skemmtun...mæli með henni!

En já ég ætla að reyna að hafa þennan pistill lengri þannig að ég þurfi ekki að fara að spá í bókhaldinu...arggg!!

Vá hvað það er orðið jólalegt og kósý úti! Elska þenna tíma...já svo er ekki langt í það að jólasveinarnir komi...Stúfur vinur minn klikkar aldrei;)

Hlín gangi þér geðveikt vel á morgun...þú massar þetta sæta!! Og svo veit ég að amma verður  með þér í prófinu...því hún hefði átt afmæli á morgun.

En allaveg ég er farin að læra kennitölur, vúhú.

Gangi ykkur öllum vel í prófunum og hafið það gott.

Kiss og knús


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 19:55:43 / frida

Köben....

Við klessurnar erum að fara til Köben fyrir jól;) Vá hvað ég hlakka til....búin að panta og borga og ekki hægt að bakka út.....jey;)

Vá ég elska lífið..og ykkur öll!!

Kys og kram

Kærlig hilsen,

-Fríða-


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 13:23:10 / hlin

.

Mikið er alltaf erfitt að byrja að læra, svona svipað og að byrja á ritgerð. Mér finnst það alltaf erfiðasti parturinn af ritgerðinni... sit hérna á bókhlöðunni og get bara ekki byrjað :S

Gangi þér æðislega vel Fríða mín í prófinu á morgun og svo verður bara vonandi Köben í desember :haha:

myndir114.jpg


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 16:39:52 / frida

Snilld...


Tjekkið á þessu, þetta er snilld....
Gaman að þessu:)

http://www.crush007.com/love.cgi?id=1132671228frr

Njótið


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 19:42:54 / frida

Sigrún afmælisskvísa!!

Ég vil óska Sigrúnu minni til hamingju með daginn, skvísan orðin 21 árs....;)

Vonandi hefuru notið dagsins sæta...veit að að þú munt eiga frábært kvöld þar sem við erum að fara að gæða okkur á kökum á einhverju sætu kaffihúsi í kvöld!!

Elska þig sæta, og hlakka til að hitta þig í kvöld...þú ert algjört æði pæði.

-Fríða- 

P.s svo ætla ég bara að halda áfram að vitna í síðu Kristínar minnar...þið getið líkt á myndir frá bústaðaferðinni á http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=8700962&uid=4151179 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 17:35:43 / frida

Í bústað....

Já mögnuð helgi á enda....tjekkið á ferðasögunni á blog.central.is/krihknu.  Þetta var algjör snilld og skemmtum við okkur öll alveg konunglega.

Takk sætu fyrir ferðina!!

Knúsar Fríða xxx


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 17:21:18 / frida

Allt að gerast!!

Úff vá ég var að klára ritgerðina fyrir svona einni mínútu og í tilefni þess hef ég ákveðið að blogga!!

Ég er ekkert smá menningarlega þessa dagana, er að fara á tónleika í kvöld í Gravarvogskirkju, úrval íslenskra söngvara kemur þar fram...örugglega mjög gaman. Já og svo eru Hjálmar á morgun, en það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum:) Við hlökkum ekkert smá til, ætlum að hafa það líka rosa huggó. Verðum samt bara fjögur, en það er bara fínt. Ætlum bara að keyra um kaffileytið og hafa það notó!! Vona að kærustuparið hagi sér vel, hehe;)

Já og svo er árleg laufabrauðsgerð í stór familíunni á laugardaginn, alltaf gaman að því. Maður kemst í svaka fíling þá...já og svo verður maður bara að reyna að læra þess á milli...það eru að koma próf!!!

Það var reynt að ráðast á mig í gær, vá hvað ég varð hrædd. Ég var að keyra í mestu makindum í 101 þegar stelpa, krúnurökuð og frekar mikið dópistalega ætlaði að reyna að komast inn í bílinn minn. Ég panikaði en náði sem betur fer að ýta á takkann sem læsir bílnum og svo gaf ég heiftarlega í!! Vá hvað ég varð sjúklega hrædd. Hvað ætlaði hún eiginlega að gera?? Vá ég þakki fyrir að vera á lífi núna..neinei kannski ekki alveg svo slæmt en þetta var samt ekki góð lífsreynsla!! Sem betur fer var ég að tala við Garðar minn og hann náði að róa mig niður þessi elska. Takk sæti:haha:

Það hefur aldrei verið jafn oft tekið fram úr mér eins og í gær, get ekki einu sinni talið hversu oft það gerðist. Ég er orðin svo afslöppuð!!

Ætla að fara að þvo af mér þessa bévítans ritgerð

Bæjó sætu

Fríða


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2005 19:40:43 / frida

"Ég er að spá í að vera saddur!!!"

Þetta lét pabbi minn út úr sér þegar hann sá hvað var í matinn, kannski ekki frásögufærandi nema það að ég var að elda.....umm já ekki mjög skemmtilegt comment og ég varð alveg smá sorry. Því ég er mjög myndarleg í eldhúsinu, í alvöru!! Það eru alveg margir sem geta kvittað undir það, eða er það ekki???8| Allaveg þá sá hann sorgarsvipinn á mér og ákvað að smakka já og hann fékk sér bara þrisvar kallinn, rosa gott:haha:

En já ég hata stjórnun örugglega alveg jafn mikið og flestir bekkjarfélagar mínir.

Annars snilldar helgi liðin, það var ekkert smá gaman...love it:) Sumir alveg að brillera í talhólfsskilaboðum, hihihih.

Já og svo er bara stefnan tekin á Flúðir næstu helgi en þá ætlum ég, Kristín, Pétur og nokkrir félagar hans Péturs að kíkja á tónleika með Hjálmum, já allt að gerast;)

-Fríða-


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 14:14:18 / hlin

Gula línan, Hlín...

... er setning dagsins hjá mér þar sem ég sit í vinnunni og það er voða lítið að gera í augnablikinu. Vegna brjálaðs veður og vinnu í dag var gærkvöldið tekið rólega með góða spólu í tækinu (sem reyndist vera Hotel Rwanda) og nammi til að jappla á. Restin af helgini verður nú líklega svipuð nema maður nenni eitthvað að kíkja aðeins í skólabækurnar.

Ég vil óska henni Kristjönu innilega til hamingju með herbergið á Njálsgötunni. Við ætlum einmitt að fara í brjálæðina í Ikea á eftir og skoða eitthvað fyrir nýja pleisið :)

fridaoghlin.jpg

Hérna eru nokkrar myndir frá sekmmtilegum tíma á liðnu ári svona aðeins til þess að lífga upp á skammdegið :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 22:47:09 / frida

Sælar kindur

Úfff er að reyna að vinna i stjórnunarverkefninu mínu...á sem sagt að skrifa um franskt fyrirtæki, var svona að byrja á þessu og ég held bara að þetti geti orðið skemmtilegt. Var frekar svartsýn þegar ég byrjaði en get bara ekki hætt núna...Nei þetta er ekki alveg svo gott, hihiih:haha:

Enn ein helgin liðin, hún var eiginlega fáránlega skemmtileg..get ekki sagt annað. Byrjuðum á því að taka smá próflokadjamm á fimmtudaginn, rosa stuð;) Ég reyndar svaf yfir mig og mætti frekar seint, hehehe. Var alveg búin eftir prófin, en var fljót að jafna mig. Svo var vísó á föstudaginn í Heklu, og party á eftir, massa stuð þar...og við dönsuðum að okkur vitið......snilld. Laugardagurinn var frekar rólegur, fór í afmæli til Gauju og bauð hún upp á svaka góðan mat, mjööög gott. Svo kíktum við aðeins niðrí bæ, pikkaði Allý mína með...alltof langt síðan ég hitti hana síðast. Vá það var alltof mikið að fólki í bænum, allt troðið í orðsins fyllstu merkingu. Svo kíkti ég aðeins á kaffihús með Sigrúnu á sunnudaginn og ég er ekki að grínast þar var gaur sem var búinn að míga á sig, hann var sko alveg um 60 ára, ógeðslegt....ekki hefði ég viljað setjast í stólinn á eftir honum....Eigum við samt að spá í hversu oft maður er búinn að setjast á e-h svona eða halda utan um eitthvað, ójjjj. Er að spá í að pæla ekki meira í þessu því yrði maður nú fljótt geðveikur!!!!!!!

Hey fór á æfingu í Risanum í gær, var svona semý farin að hlakka til að fara...en neigat ekki beðið eftir að æfingin yrði búin, demmm. Mér fannst þetta sem sagt ekki gaman...og hef ákveðið að leggja skónna á hilluna allavega fram yfir jól og safna bara ástarhönkum í staðinn, hvernig hljómar það??? hehehehe

Hófi mín er að koma í bæinn á morgun, er að spá í að kíkja með henni að horfa á Pálmar sinn spila...það verður örugglega mjög gaman.

Knúsar Fríða:D

P.S Keyrðu varlega elskan;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3