Loksins er þessi prófatörn að verða búin! Hún er nú samt ekki
búin að vera neitt leiðinleg...bara þreytandi að vera sí lærandi.
Ég og Kristín erum búnar að hafa það mjög gott með
frímerkjasöfnurunum og erum við öll orðin hinir mestu félagar
Ég
held bara að ég eigi eftir að sakna þess að hanga þarna alla daga
og læra....æi kannski ekki!!
Kíkti aðeins út í gær..það var fínt. Ágætt að komast aðeins út,
fá sér einn bjór og klæða sig úr prófljótunni...þó hún fari nú
ekki alveg fyrr en á mánudaginn!!
Kristjana er búin að panta sér far með okkur út...ég er ekkert
smá ánægð með þig! Það verður æðislegt hjá okkur. Huggum okkur alla
daga og verslum þess á milli..gerist ekki mikið betra í góðra vina
hóp
Annars eru prófin bara búin að ganga allt í lagi bara..eða það
held ég eða vona frekar...krossa fingur!!!
Jæja ætla að fara að lesa "What makes a leader?" og reyna að
tileinka mér e-h af innihaldi greinarinnar.
Ég er orðin húkkt á að hlusta á Tracy Chapman....æi ég fæ
einhverja svona góða tilfinningu þegar ég hlusta hana...æi veit
ekki hvað það er, en...!!!!!
Held að þetta sé bara orðið gott í bili...og já BARA 9 dagar í
Köben
-Fríða-